16.1.2012 | 22:46
Ásmundur varð 6 sinnum Íslandsmeistari: Hugkvæmni, keppnisþrek og óbilandi jafnvægi
Ásmundur Ásgeirsson var besti skákmaður Íslands 1931-1946. Hann tefldi við tvo heimsmeistara, Lasker og Alekhine, og tapaði að vísu báðum skákunum, en Ásmundur varð sex sinnum Íslandsmeistari og var á toppnum í fimmtán ár. Hann var kóngurinn þegar litli prinsinn Friðrik kom fram á sjónarsviðið.
Þegar Ásmundur lést, 2. nóvember 1986, skrifaði Baldur Möller um hann minningarorð í Morgunblaðið. Baldur varð Íslandsmeistari þrisvar sinnum, afar slyngur skákmaður, og einstakur sómamaður í hvívetna. Ásmundar naut ekki langrar skólagöngu, segir Baldur, en hann var margfróður. Baldur skrifar:
Í dag er borinn til grafar Ásmundur Ásgeirsson, skákmeistari, en hann lézt í Reykjavík 2. þ.m., rúmlega áttræður að aldri. Ásmundur fæddist í Reykjavík 14. marz 1906, en foreldrar hans voru Ásgeir Ásmundsson, sjómaður og leiðsögumaður í Reykjavík, og Þórunn Þórsteinsdóttir. Ásmundur var tvíkvæntur og átti tvö börn í fyrra hjónabandi sínu, Ásu, f. 15. nóv. 1928, búsetta í Reykjavík, og Ásgeir, f. 2. júní 1938, mjólkurverk fræðing, búsettan í Svíþjóð.
Ásmundur naut ekki langrar skólagöngu, en aðstæður hans leyfðu það ekki. Hann hefur þó án efa verið mjög vel til náms fallinn, enda var hann t.d. að upplagi mjög góður stærðfræðingur og úr skólum var hann þó margfróður um ýmis efni, svo sem hæfileikar hans gáfu efni til.
Rúmlega tvítugur var Ásmundur orðinn einn bezti skákmaður Íslendinga og átti stóran þátt í þeirri grósku sem varð í íslenzku skáklífi á þriðja áratug aldarinnar, en varð skákmeistari Íslands í fyrsta sinn árið 1931, en skákmeistari Reykjavíkur 1930. Þessa titla vann hann á 15 ára tímabili alls átta sinnum og tefldi 5 sinnum í landsliði Íslands á Ólympíuskákmótum frá 1930 til 1939 og vann þar marga athyglisverða sigra.
Einkenni Ásmundar sem skákmanns voru ekki sízt hugkvæmni, keppnisþrek og óbilandi jafnvægi hans, en eðlisgáfur hans voru eflaust sú kjölfesta, sem allt þetta byggðist á.
Með þessum línum vil ég að leiðarlokum flytja honum þakkir fyrir samfylgdina á gróskuárum skáklistar millistríðsáranna, þótt engan gæti grunað þá hvað á eftir mundi fylgja. Ég minnist jafnframt hlýju hins eðliskurteisa heiðursmanns, sem hann ætíð var í íþrótt sinni. Fjölskyldu hans flyt ég samúðarkveðjur.
Athugasemdir
mér er alltaf minnisstætt þegar Benóný Benediktsson heimsótti Ásmund á reiðhjólinu sínu og sló blettinn hans með orfi og ljá. Ég var nágranni þeirra skötuhjúa um árabil, þau bjuggu í mjög látlausri kjallaraíbúð og fór lítið fyrir þeim.
Ríkharður Sveinsson (IP-tala skráð) 18.1.2012 kl. 10:08
Takk fyrir að deila þessari skemmtilegu minningu, Ríkharður! Væri gaman að sjá meira eftir þig frá liðinni (skák)tíð. Þú hefur frá mörgu skemmtilegu að segja!
Skák er skemmtileg, 21.1.2012 kl. 15:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.